Flugfrakt

EIGIN FRAKTFLUGVÉL · ALÞJÓÐLEGT LEIÐARKERFI

Flugfrakt sem tengir Ísland við heiminn.

Þegar tíminn skiptir máli hjálpum við þér að koma sendingunni á áfangastað. Með eigin fraktflugvél í gegnum Odin Cargo og alþjóðlegu neti samstarfsaðila bjóðum við sveigjanlegar lausnir fyrir inn- og útflutning.

Fraktflugvél Odin Cargo, samstarf Torcargo um flugfrakt
FLUGFLUTNINGAR FYRIR FYRIRTÆKI

Rétta flutningsleiðin fyrir þína sendingu.

Við bjóðum hraðvirka og þægilega flugfrakt til og frá Íslandi. Við skipuleggjum flutninginn eftir þörfum þíns fyrirtækis, hvort sem um er að ræða reglulegan innflutning, útflutning eða einstaka áríðandi sendingu.

✈

Eigin fraktflugvél

Fraktflug um Keflavík með eigin flugvél í gegnum Odin Cargo.

◎

Alþjóðlegar tengingar

Við tengjum sendingar áfram um flug- og flutningsnet samstarfsaðila.

▣

Frá dyrum til dyra

Við aðstoðum við afhendingu, flutningsskjöl og tollafgreiðslu eftir þörfum.

FRÁ KEFLAVÍK ÚT Í HEIM

Flugleiðir og tengingar

Með eigin fraktflugvél og alþjóðlegu neti samstarfsaðila bjóðum við fjölbreyttar flugfraktlausnir til og frá Íslandi og um allan heim.

Fraktflug frá Keflavík

Fraktflug milli Keflavíkur og eftirfarandi borga:

  • Billund, Danmörk
  • Köln, Þýskaland
  • Varsjá, Pólland
  • Minneapolis, Bandaríkin
  • Detroit, Bandaríkin
  • New York, Bandaríkin
Alþjóðleg flutningsmiðlun í flugi

Frá þessum áfangastöðum tengjum við sendingar áfram í gegnum leiðarkerfi samstarfsaðila.

Auk þess bjóðum við upp á alhliða flutningsmiðlun í flugi um allan heim, bæði fyrir inn- og útflutning.

Odin Cargo fraktflugvél
EINFALT FERLI

Við sjáum um sendinguna frá upphafi til enda.

01Þú segir okkur frá sendingunni

Hvaðan hún kemur, hvert hún á að fara og hvers konar vörur þarf að flytja.

02Við finnum flutningsleið

Við skipuleggjum flugfraktina og áframhaldandi flutning eftir þörfum.

03Við sjáum um flutningsferlið

Flutningsskjöl, tollafgreiðsla og vörumeðhöndlun eftir því sem við á.

04Sendingin kemst á áfangastað

Við samræmum afhendingu og aðra þjónustu eftir þörfum.

TEYMIÐ OKKAR

Sérfræðingar okkar í flugfrakt

Við aðstoðum þig við að finna réttu flutningsleiðina fyrir þína sendingu.

Arnar Eide Garðarsson

Arnar Eide Garðarsson

Flugfrakt

airfreight@torcargo.com

Bjarni Hjaltason

Bjarni Hjaltason

Sala og ráðgjöf

airfreight@torcargo.com

Liga

Liga Liepina

Flugfrakt

airfreight@torcargo.com

Ótthar Edvardsson

Ótthar Edvardsson

Flugfrakt

otthar@torcargo.com

FÁÐU TILBOÐ Í FLUGFRAKT

Hvert þarf sendingin þín að fara?

Segðu okkur frá sendingunni. Við hjálpum þér að finna hentuga flutningsleið og gerum þér tilboð.

Torcargo – Flutningar sem snúast um þig.

Flugfrakt

Pakkningar og rúmmálsþyngd

Skráðu eina línu fyrir hverja pakkningastærð. Þyngd er á hverja pakkningu.

Áætlað miðað við 167 kg/m³. Endanleg greiðsluþyngd getur ráðist af reglum flutningsaðila.